Með breytingum á skattlagningu áfengis um áramótin mun Ísland endurheimta Evrópumet í áfengisgjöldum á sterkari drykki, sem tapaðist í hendur Norðmanna þegar krónan hrundi.
Þetta kemur fram í athugun Félags atvinnurekenda sem fylgist vel með skattlagningu ríkisvaldsins á jafnt fólk og fyrirtæki, þjónustu og vörur.
Alþingi hefur samþykkt að um áramótin lækki virðisaukaskattur á áfengi úr 24% í 11%, en á móti munu áfengisgjöld hækka um rúmlega 20%. Heildarskattlagning á áfengi breytist þannig ekki, en hlutfall áfengisgjaldsins, sem er föst krónutala á lítra af hreinum vínanda, hækkar hins vegar verulega.
Í samanburði áfengisskatta í Evrópu var Ísland lengi vel með hæstu áfengisgjöldin. Þetta breyttist við bankahrunið þrátt fyrir að áfengisgjöldin hækkuðu duglega í krónum talið, vegna þess að gengi krónunnar hrundi og skekkti allan samanburð. Nú nær Ísland hins vegar fyrsta sætinu aftur, þrátt fyrir gengishrun.