Samfélagsrýnir: ísland er þróunarland!

Lára Hanna Einarsdóttir samfélagsrýnir ræðir stóriðjur á Íslandi með nokkrum þunga í nýlegri færslu á fésbók. Þar tengir hún við frétt Stundarinnar um að Alcoa á Íslandi hafi flutt milljarða skattlaust úr landi.

Lára Hanna talar tæpitungulaust þegar hún ber saman hvað stóriðjur hafi fært Íslandi í seinni tíð.

„Við vitum þetta. Okkur hefur verið sagt þetta áður og við eigum ekki og megum ekki gleyma því. Stóriðjan hefur verið okkur rándýr, kostað skattborgara ómælt fé og litlu sem engu skilað til samfélagsins. Hún notar þó alla okkar innviði sem við borgum. Og stóriðjustörf eru þau dýrustu í heimi, við vitum það líka,“ segir baráttukonan góðkunna, þýðandinn og bloggarinn í upphafi pistilsins.

Lára Hanna vitnar svo í hollenska heimildarmynd  um skattaundanskot alþjóðlegra auðhringa í Afríku. Þar hafi komið fram að öll Afríkulönd væru „ríkisrekin skattaskjól“ fyrir auðhringana. Í sömu mynd segi háskólakennari í Nairobi efnislega þetta í lauslegri snörun Láru Hönnu:

„Þeir reisa verksmiðjurnar, sem eru skattlausar í 10 ár. Þetta viðgengst í flestöllum Afríkulöndum. Við höfum komist að því í öllum löndunum að þegar því 10 ára tímabili lýkur þá loka þeir verksmiðjunum og flytja þær. Önnur aðferð er að hafa eigendaskipti og þá framlengist skattleysið um önnur 10 ár.

Auðhringarnir fjárfesta vegna auðlindanna, ekki skattleysisins. Auðlindirnar fara ekkert, þær flytja sig ekki yfir landamærin, þær eru á sínum stað. En af einhverjum ástæðum skilja ríkisstjórnir þróunarlanda þetta ekki. Þær halda ennþá að þær þurfi að sárbæna alþjóðlega auðhringa um að koma til landsins. En það sem gerist í raun er að þeir hirða auðlindirnar og fara. Þetta er arðrán.“

Hún bætir við: „Ísland er þróunarland í þessum skilningi. Allar ríkisstjórnir undanfarna áratugi hafa verið á hnjánum í anddyrum auðhringanna. Vitið þið hvenær kísilverksmiðjan á Bakka á að fara að greiða skatta? Eftir 14 ár (10 ár frá því skattskylda eða gjaldskylda myndast).“