Ísland er spilltast norðurlandanna

 

 

Sex milljarðar íbúa lifa í löndum þar sem alvarleg spilling er undirliggjandi mein í samfélaginu. Þetta kemur fram í nýrri úttekt frá Transparency International.

Ísland er spilltasta land Norðurlandanna, annað árið í röð. 12 lönd mælast með minni spillingu og er af sem áður var þegar Ísland var talið óspilltasta land jarðar, 2005-2006.

Fræðingar hafa í seinni tíð sagt að almennir mælikvarðar til að mæla spillingu nái síður til Íslands en annarra ríkja svo sem mútur og greiðslur undir borðið en frændhygli og klíkuskapur eru alltaf til skoðunar sem og ógegnsæli í stjórnsýslu eins og Borgunarmálið er til vitnis um.

Hér má lesa úttekt TI.

Haft er eftir Jozé Ugaz, formanns TI, að árið 2015 hafi verið árið þar sem fólk víða um heim þyrpitist út á göturnar til að mótmæla spillingu.

Fjölmargir mótmælafundir voru einmitt haldnir á Íslandi í fyrra. Fór sá síðasti reyndar fram í gær þegar „loka átti Landsbankanum vegna spillingar“ – vegna Borgunarnálsins.