Söguleg stund varð á Laugardalsvelli í gærkvöld þegar íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu gerði jafntefli við Kasakstan og komst með þeim árangri í lokakeppni Evrópumeistaramótsins í knattspyrnu í Frakklandi á næsta ári.
Þetta er í fyrsta skipti sem ískenskt landslið í knattspyrnu kemst upp úr riðli sínum á stórmóti og skilar sér á stórmót. Það sem vekur enn meiri athygli er að íslenska liðinu tekst þetta löngu á undan öðrum liðum í undankeppninni, en Ísland er aðeins þriðja liðið sem tryggir sér þátttökurétt á EM 2016.
Leikurinn gegn Kasökkum í gærkvöld var fremur tíðindalítill. Ísland hafði lengst af yfirhöndina og hefði hæglega getað knúð fram sigur í fjölda sókna sinna og lék á stundum vörn andstæðinga sinna grátt.
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska liðsins var rekinn út af undir lok leiksins, en íslenska liðið hélt karakter sínum allan leikinn á enda og varðist sem einn maður.
Holland tapaði í Tyrklandi með þremur mörkum Tyrkja gegn engu og getur aðeins náð þriðja sæti úr þessu, en Tékkar unnu Letta með tveimur mörkum gegn einu síðdegis í gær og berjast við Íslendinga um fyrsta sæti í riðlinum, en það verða annhvort Hollendingar eða Tyrkir sem enda í þriðja sæti.
Með jafnteflinu í gærkvöld náðu Kasakkar í sitt annað stig í riðlakeppninni.