Ísland er ekki uppselt

Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri var gestur í Þjóðbraut í gærkvöld. Ólöf greindi frá nýrri rannsókn þolmörk í ferðaþjónustu.

Hún sagði ástæðu þess að  Ferðamálastofa afréð að ráðast í verkefnið megi rekja til hinnar miklu fjölgunar ferðamanna hér á landi og þess álags sem af henni skapast. Því höfðu vaknað spurningar um hvort ferðamenn væru nú þegar of margir á vinsælustu áfangastöðum landsins.

Í rannsókninni bendir ekkert til að Íslendingar séu búnir að fá nóg af ferðafólki. Þvert á móti liggur viðmælendum í rannsókninni gott orð til ferðafólks, þykir það setja líflegan blæ á bæinn sinn og kann að meta áhuga þess á staðnum. Viðmælendur tala jafnframt af umhyggju fyrir ferðafólkinu, vilja að það fái sem mestar og bestar upplýsingar, sé öruggt og leggja gjarna sitt að mörkum svo að gestirnir njóti Íslandsferðarinnar.

Viðtalið við ferðamálastjóra verður aðgengilegt hér á heimasíðu Hringbrautar innan skamms.