Ísland enn skráð umsóknarríki

Í nýrri skýrslu um efnahagshorfur Evrópuþjóða sem var að koma út á vegum Evrópusambandsins er Ísland skráð í hópi þeirra ríkja sem eru að sækja um aðild að sambandinu. Það er þvert á túlkun utanríkisráðherra Íslands.


Skýrslan kom út í síðustu viku og þar stendur nafn Íslands skýrt á lista yfir þær þjóðir sem eru í umsóknarferli. Þegar þessar upplýsingar voru bornar undir Gunnar Braga Sveinsson utanríkisráðherra Íslands í dag taldi hann að skýrslan hefði verið það lengi í vinnslu að láðst hefði verið að taka Ísland út af listanum.


Mjög er raunar á reiki hver staða Íslands er að mati Evrópusambandsins sjálfs. Þannig hefur talsmaður sambandsins látið hafa eftir sér að lögformleg staða Íslands hafi ekkert breyst við bænaskjal íslenska utanríkisráðherrans til ESB seint í febrúar þess efnis að sambandið mætti líta svo á að umsóknin hefði verið dregin til baka af hálfu íslenskra stjórnvalda. Sagði talsmaðurinn þá að það væri hlutverk Alþingis að draga hana til baka og það hefði þingið ekki gert.


Gunnar Bragi segir aftur á móti að hann túlki aðrar yfirlýsingar sambandsins í þá veru að umsóknin sé úr sögunni.