Ísland er enn á lista umsóknarríkja Evrópusambandsins á vefsíðu þess, réttri viku eftir að Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sendi forkólfum ESB bænaskjal þess efnis að sambandið liti ekki lengur á Ísland sem umsóknarríki. Hvað sem orðum og túlkunum forystumanna stjórnarflokkanna á Íslandi líður hefur nafn landsins því ekki verið fjarlægt af lista þeirra þjóða sem eru í aðildarferli. Umsókn Íslands virðist samkvæmt því ennþá vera gild að hálfu sambandsins.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra afhenti Edgars Rinkevics, utanríkisráðherra Lettlands sem fer með formennsku ESB, bréf um slit á aðildarviðræðum við sambandið á fundi í Slóvakíu á fimmtudag í síðustu viku. Svo virðist sem sambandið túlki ekki það bréf sem slit á viðræðum, ef marka má heimasíðu þess, að ekki sé talað um orð talsmanns stækkunarstjóra sambandsins sem segir að bréfið sem Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, afhenti forsvarsmönnum sambandsins í síðustu viku, sé ekki ígildi afturköllunar aðildarumsóknar. Enn er því algerlega óljóst hvaða þýðingu bréf utanríkisráðherra hefur á stöðu Íslands sem umsóknarríkis að Evrópusambandinu.
Fjallað var ítarlega um stöðu umsóknarinnar í þættinum Heimsljós á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld, en gestir þáttarins voru Jórunn Frímannsdóttir, Kristrún Heimisdóttir, Guðmundur Steingrímsson og Katrín Jakobsdóttir, en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fékkst enginn úr hópi stjórnarliða til að mæta í umræðuna og ræða óljósa stöðu ESB-málsins.