Ísland ekki litla liðið á em 2016

Ef horft til veðbanka þá virðist Ísland ekki vera „litla liðið“ í loka­keppni Evr­ópu­keppni landsliða í knatt­spyrnu í Frakklandi næsta sum­ar að því er fram kemur í samantekt á mbl.is í morgun. Íslenska liðið þykir þó ekki lík­legt til að vinna keppn­ina en marg­ar þjóðir eru tald­ar síður lík­leg­ar. 

Mbl.is tók stikkprufu á þrem­ur veðbönk­um - og er hér stuðst við frétt miðilsins:. Ef fyrst er horft til William Hill, eins elsta starf­andi veðbank­ans sem komið var á fót árið 1934, að þá er Ísland þar í 17. - 19. sæti ásamt Írlandi og Úkraínu. Liðin sem þykja slak­ari eru Slóvakía sem Ísland mætti í vik­unni, Alban­ía, N-Írland og Ung­verja­land þykir síst lík­legt til að vinna keppn­ina en er liðið þó í þriðja styrk­leika­flokki þegar dregið verður í riðla. Stuðull­inn á Ísland er 80 sem þýðir að upp­hæðin átta­tíufald­ast ef veðjað er á að Ísland vinni keppn­ina og sú verði niðurstaðan. Stuðull­inn á Ung­verja­land er hins veg­ar 500 til sam­an­b­urðar.

Hjá Bet365 sem marg­ir Íslend­ing­ar nota er þessi stuðull 81. Þar er Ísland í 15. - 18. sæti ásamt Tyrkj­um sem voru með okk­ur Íslend­ing­um í riðli í undan­keppn­inni, Sví­um og Úkraínu­mönn­um. Sex þjóðir eru þá fyr­ir neðan Ísland. Sömu fimm og hjá William Hill ásamt Írlandi.

Hjá Bets­son er stuðull­inn á Ísland: 75. Þar er Ísland í 15. - 17. sæti ásamt Tékklandi og Tyrklandi. Þessi þrjú lið voru ein­mitt öll sam­an í riðli í undan­keppn­inni. Sömu sex þjóðir eru fyr­ir neðan Ísland hjá Bets­son eins og Bet365, segir ennfremur orðrétt í samantekt mbl.is í morgun.