Ísland dýrast af 37 evrópulöndum

Formaður Neytendasamtakanna segir ekki hægt að skýra hátt verðlag hérlendis eingöngu með háum innflutningskostnaði eða smæð markaðarins. Efla þurfi samkeppniseftirlit og löggjöf, og gera stjórnendur fyrirtækja ábyrga fyrir samkeppnisbrotum.
 

Þetta segir hann í ljósi niðurstaðna Eurostat, Hagstofu Evrópusambandsins, en þar er Ísland sagt vera dýrast af 37 Evrópulöndum, í sex af tólf vöru- og þjónustuflokkum. Þá er verð á Íslandi, samkvæmt sömu könnun, yfir meðaltali í öllum flokkunum nema einum. Formaður Neytendasamtakanna segir í fréttum RÚV í gærkvöld að nauðsynlegt sé að stjórnvöld bregðist við þessu. Ísland þurfi að vera samkeppnishæft við nágrannalöndin, hvað varðar verðlag, ef við viljum halda ungu fólki á landinu: \"Ef við ætlum að halda til að mynda, ef að við getum skapað þokkalega atvinnu fyrir unga fólkið, þá verðum við að vera einnig samkeppnishæf hvað varðar verðlag.“

Formaðurinn segir niðurstöðurnar ekki koma sér á óvart. Margt spili inn í sem hafi þau áhrif að verðlag hérlendis haldist hátt: \"Við erum fámenn, við náum lélegu verði væntanlega erlendis vegna þessa fámennis, það kostar sitt að flytja vörurnar hingað, en það dugir ekki til að réttlæta þann verðmun sem er, þannig að það verður að fara dýpra ofan í þetta,“ segir hann: \"Verðlagið er gersamlega úti í skurði,“ bætir hann við, en tollar á fatnað séu til að mynda of háir, en afnám þeirra dugi ekki til. Samkvæmt tölum Eurostat, sem unnar eru upp úr tölum Hagstofunnar, eru skór og fatnaður um helmingi dýrari hérlendis en meðalverð í Evrópu. „Mér skilst nú á tölunum að það þurfi að gera meira en að bara lækka tollana, þannig að þá horfum við að sjálfsögðu á, ef að þessi verslun á að vera samkeppnishæf, þá verðum við að lækka virðisaukaskattinn líka til viðbótar.“

Veita þurfi verslunum og birgjum aðhald, og efla verðlagseftirlit, að því er fram kemur í samtali formanns Neytendasamtakanna við vefinn.