Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) og íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að hefja samstarf í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi. Verkefnið felur í sér rannsóknir á sýklalyfjaónæmi í E. coli bakteríum á Íslandi með heilraðgreiningu á erfðaefni þeirra. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu á vef Matvælastofnunar.
Þar segir að vonast sé til þess að niðurstöðurnar varpi ljósi á uppruna baktería með getu til að mynda sýklalyfjaónæmi, það er ESBL/AmpC myndandi E. coli. Leitast verður eftir því að greina þátt matvæla, dýra, manna og umhverfis í útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.
„Nýleg viðhorfskönnun EFSA sýnir að helstu áhyggjur evrópskra neytenda eru sýklalyf í matvælum. Það gleður mig að EFSA og Matvælastofnun hafi ákveðið að sameina krafta sína í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi, sem er ein helsta ógn sem við stöndum frammi fyrir í dag. Styrkur EFSA, sem nemur 8,5 milljónum króna, mun styðja við vísindarannsóknir og vera hlekkur í sameiginlegu átaki gegn sýklalyfjaónæmi á heimsvísu,“ segir Dr. Bernhard Url, forstjóri EFSA.
Í tilkynningu MAST er tekið undir þessi sjónarmið Url. Sýklalyfjaónæmi er þar sögð ein stærsta ógn við lýðheilsu í heiminum í dag og bent á að alþjóðastofnanir hafi hvatt aðildarþjóðir sínar til að efla rannsóknir til að stemma stigu við þessari ógn. Niðurstöður rannsóknanna muni nýtast til að útbúa viðbragðsáætlanir til að viðhalda lágu hlutfalli sýklalyfjaónæmis eða að hægja á þróun/aukningu ónæmis eins og hægt er.
Sjá einnig: Fjögur börn greinst með alvarlega sýkingu af völdum E. coli bakteríunnar – Tvö á spítala
Undirritun samnings vegna verkefnisins fór fram í dag í hátíðarsal Háskóla Íslands í tengslum við komu Dr. Bernhard Url til fundar ráðgjafahóps EFSA á Íslandi (Advisory Forum). MAST, í samvinnu við Keldur, Matís og sýklafræðideild Landspítalans, hefur unnið að undirbúningi að samstarfsverkefninu með EFSA og DTU Fødevareinstituttet í Danmörku. Verkefnið er unnið undir formerkjum „One Health,“ sem er alþjóðleg stefna ætluð auknu þverfaglegu samstarfi og samskiptum á öllum sviðum heilbrigðisþjónustu fyrir menn, dýr og fyrir umhverfið.
Verkefnið er partur af röð samstarfsverkefna EFSA á sviði matvælaöryggis og er megin markmið þeirra að auka þekkingu í hverju landi ásamt því að auka samvinnu milli landa innan Evrópu. Verkefnið er einnig liður í áætlun stjórnvalda til að auka fjármagn til rannsókna og sóknar gegn sýklalyfjaónæmi og verður styrkt að hluta af EFSA.