"Landnemar Íslands voru frumkvöðlar. Þeir flúðu skattaáþján í heimalandinu og sáu að nýliðun í landbúnaði var erfið í Noregi vegna skorts á landi." Þannig hefst fróðlegur pistill Thomasar Möller á hringbraut.is um nauðsyn frumkvöðlastarfs á Íslandi.
Og hann minnist landnemanna áfram: "Þeir stofnuðu búskap á Íslandi, þróuðu þingstörf og stunduðu nýsköpun í trúmálum, handritagerð og skáldskap sem reyndar var ein aðal útflutningsafurð þeirra." Svo tóku við 900 ár mjög takmarkaðrar nýsköpunar í landinu, skrifar hann áfram, af því kapp var lagt á að hneppa ódýrt vinnuafl í fjötra. "Frjáls verslun var auk þess bönnuð og verðlag ákveðið í Köben. Verra gat þetta eiginlega ekki verið, " skrifar Thomas.
Áður en breytingar hófust hafi menn reynt að flýja þessa stöðnun til Vesturheims, en svo hafi nútíminn loksins komið; mótorar í bátana, ritsíminn, verktaka fyrir herinn og að lokum internetið - og þannig hafi öll síðasta öld verið samfellt nýsköpunarskeið. Á nýrri öld verði landsmenn að huga að því að gera enn betur - og raunar miklu betur - eigi íslenskt samfélag ekki að dragast aftur úr öðrum.
"Mikilvægast er að auðvelt sé að stofna fyrirtæki, auðveld nýliðun sé í greininni og aðgangur að fjármagni sé auðveldur," skrifar Thomas og heldur áfram: "Til að frumkvöðlastarf beri ávöxt þarf ríkisvaldið fyrst og fremst að stuðla að stöðugleika, lágum vöxtum og lítilli verðbólgu. Það þarf að lækka tryggingargjaldið, hafa skattalega hvatningu fyrir frumkvöðla og bjóða upp á haftalausan alþjóðlegan gjaldmiðil."
Hann sér fyrir sér að á 21. öldinni munu einstaklingar í auknum mæli reiða sig á sjálfan sig, finna tækifærin og fara út í eigin atvinnurekstur sem sjálfstætt starfandi verktakar eða einyrkjar. Allar forsendur séu til þess á Íslandi, svo fremi stjórnvöld skapi réttu aðstæðurnar. En hér þurfi greinilega að ýta við mannskapnum: "Aðeins um 10% vinnandi fólks á Íslandi er sjálfstætt starfandi. Ísland er í 46. sæti í nýlegri skýrslu Alþjóða efnahagsráðsins um nýsköpunarhæfni landsins. Samt erum við í fyrsta sæti hvað varðar netnotkun og 12. sæti hvað varðar tíma sem tekur að stofna fyrirtæki. Rafræn greiðslumiðlun er með mesta móti," skrifar Thomas og hvetur fólk til meira áræðis í frumkvöðlastarfi og nýsköpun, annars blasi við stöðnun á ný.