Ísland ekki ódýrast í bitcoin vinnslu

Það eru til miklu ódýrari staðir í heiminum til að grafa eftir bitcoin en á Íslandi. Ef rafmagnskosnaður við vinnsluna er aðalmálið þá ætti því að vera óþarfi að fórna íslensku landslagi til að búa til rafmagn fyrir bitcoin gróðapunga.

Þetta er að minnsta kosti niðurstaðan samkvæmt lista sem birtur er á MarketWatch í dag yfir kostnað við að grafa eftir 1 stk. af bitcoin útfrá rafmagnsverði og skattlagningu landa.

Þar er kostnaður við að vinna hvert stykki af bitcoin sagður nema 4.746 bandaríkjadölum á Íslandi. Samkvæmt listanum eru 32 lönd þar sem vinnslan er ódýrari en hér á landi: Þetta eru til dæmis Rússland, Kína, Hvíta Rússland, Argentína, Búlgaría, Georgía, Indland, Serbía, Úkraína og Venesúela, þar sem vinnslan er ódýrust. Í Venesúela væri vinnslan næstu 9 sinnum ódýrari en á Íslandi, enda raforka þar mikið niðurgreidd. Dýrasta vinnslan yrði í Suður Kóreu, 26.170 dali fyrir hvert bitcoin. Aðalástæðan fyrir því eru dýr fjármagnshöft sem S-Kóreumenn hafa sett á bitcoin hreyfingar.

Nýlega var haft er eftir Smára McCarthy þingmanni Pírata í AP-frétt að orkuþörf ört vaxandi bitcoin-vinnslu á Íslandi verði bráðlega jafnmikil og orkunotkun allra íslenskra heimila. Smári vill að rædd sé skattlagning þeirra aðila sem stunda vinnslu bitcoin og annars rafeyris á Íslandi.

Mikil ásókn hefur verið í íslenska orku til bitcoin vinnslu að undanförnu. Jóhann Snorri Sigurbergsson forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá HS Orku segir í AP-fréttinni að orkunotkun bitcoin vinnslu hér á landi tvöfaldist á þessu ári og fari upp í 100 megavött.

Bitcoin vinnslan er orkufrek, í sem einföldustu máli má segja að hún felist í að tölvukeyra sameiginlegt og sístækkandi bókhaldskerfi allra bitcoinviðskipta í skiptum fyrir smáræði af Bitcoin. Eftir því sem kerfið stækkar, því orkufrekari verður þessi keyrsla. Nú er orkunotkun alls kerfisins á heimsvísu nærri því að vera sú sama og heildarorkuþörf Írlands.

Listinn í heild um bitcoin kostnað er í frétt MarketWatch