Óttarr Proppe, alþingismaður sem fer fyrir þingmannanefnd um breytingar á útlendingalöggjöfinni, bendir á að Ísland eigi landamæri í Miðjarðarhafinu, og samkvæmt Schengen samkomulaginu séu Íslendingar í raun að sinna skyldu sinni við landamæruvörslu með því að leggja til skip og mannafla í starfi Frontex, landamærasamstarfi Evrópuríkja.
Óttarr er einn fjögurra gesta í fréttaskýringaþættinum heimsljósi í kvöld þar sem fjallar verður um vaxandi straum flóttafólks frá Evrópu til sunnanverðrar Evrópu, en hundruð þeirra hafa farist þegar bátskriflum sem þau hafa komist í hefur hvolft úti á rúmsjó.
Landhelgisgæsla Íslands gegnir nú mikilvægu hlutverki í landamæravörslu og björgunarstörfum í Miðjarðarhafi. Starf Gæslunnar hefur fært veruleika flóttamanna og þá lífshættu sem þeir standa frammi fyrir nær Íslendingum, eins og Auðunn Friðrik Karlsson aðgerðarstjóri í alþjóðlegum verkefnum Gæslunnar kemur inn á í þættinum.
Auðunn segir Íslendinga hafa tekið þátt í landamæraeftirliti frá árinu 2010. Fyrst hafi verið litið á það sem tækifæri til að reka ákveðnar einingar innan Gæslunnar, en fyrst og fremst sé um eðlilega alþjóðalega samvinnu að ræða þar sem sérþekking Íslendinga í eftirliti og björgun úr hafi nýtist einstaklega vel. Auðunn segir þessi verkefni, sem geta varað allt upp í 4 mánuði á ári, ekki skila tekjum fyrir Landhelgisgæsluna en geri henni kleift að halda úti skipakosti og mannafla í starfi allan ársins hring og fjármagna þannig ákveðinn hluta starfseminnar.
Heimsljós er frumsýnt klukkan 20.45 í kvöld.