Big Mac vísitalan er 67 prósent hærri hér en í Sviss sem er efst á listanum. Í hugleiðingu vikunnar í Markaðstorginu skoðar Pétur Einarsson Big Mac vísitöluna í Bandaríkjadollurum (eða sambærilega vöru).
Pétur ræðir í þættinum einnig við Kjartan Ólafsson stjórnarformann Arnalax. Fyrirtækið stefnir í 10 milljarða króna veltu og selur 80 prósent til Whole Foods en hefur engu að síður mætt gríðarlegri andstöðu. Þá segir Hrönn Magnúsdóttir frá collagen sem er unnið úr fiskroði og er markaðssett í gegnum netið út um allan heim. Kjartan Örn Sigurðsson segir að velta Costco gæti orðið 40-50 milljarðar króna.
Smelltu hér til að horfa á nýjasta þátt Markaðstorgsins.