Íslendingar eru komnir á kunnuglegar slóðir hvað hamingjuna varðar, en engin þjóð er þeim nú framar í þeim efnum ef marka má nýja alþjóðlega könnun á vegum Gallup.
Athygli vekur að Ísland er eina Evrópuþjóðin sem kemst inn á topp tíu listann yfir hamingjusömustu þjóðir heims, en eyjaskeggjar hér í norðurhöfum eru þar í hópi þjóða sem njóta ef til vill ekki alveg sömu lýðréttinda og viðgangast hér á landi, að ekki sé talað um mannréttindi.
Meðal annarra þjóða sem telja sig á meðal tíu hamingjusömustu samfélaga heims er Kolumbía, en þrátt fyrir að ógnaröld og megn spilling hafi verið í landinu um langt árabil, tyllir þetta Suður-Ameríkuland sér á toppinn í nýjustu könnunni. Fiji-eyjar koma næst Kólumbíu og Sádí-Arabía í því þriðja. Það ríki hefur ítrekað verið sakað um víðtæk mannréttindabrot gagnvart þegnum sínum., enda tjáningarfrelsi þar fótum troðið, kúgun landlæg og staða kvenna vægast sagt afleit.
Þar á eftir koma Aserbaídjan, Víetnam, Argentína, Panama, Mexíkó og Ekvador. Það er ekki fyrr en í 10. sæti sem fyrsta Evrópuríkið á listanum lítur dagsins ljós, það er sem fyrr segir Ísland sem deilir sætinu með Kína. 78% Íslendinga eru ánægð með lífið, en einungis 4% óánægð. 17% segjast hvorki ánægð né óánægð.
Evrópuþjóðir eru aftur á móti áberandi á lista yfir óhamingjusömustu þjóðirnar. Frakkar og Ítalir verma botnsætið, en þar á eftir koma Kongó, Búlgaría, Hong Kong, Palestína, Afganistan og Grikkland.
Þetta er í 38. skipti sem Gallup gerir könnunaf þessu tagi, en í ár nær hún 68 landa og tóku allls 66 þúsund manns þátt í henni. Spurt var um þrjú atriði; hvort árið 2016 verður betra en 2015, efnahagslegar horfur árið 2016 samanborið við árið áður og ánægju með lífið.