Að minnsta kosti 33 fórust og 100 særðust í sjálfsmorðsárás í borginni Jalalabad í austurhluta Afganistan fyrir réttri stundu. Samtökin ISIS segjast bera ábyrgð á ódæðinu, en ekki hefur tekist að sannreyna það.
Sprengingin varð fyrir utan banka á háannatíma þar sem ríkisstarfsmenn og hermenn voru að ná í laun sín. Börn voru þó meðal fórnarlamba. Þetta er versta árás sem beint hefur verið að óbreyttum borgurum í Afganistan í marga mánuði.
Forseti Afghanistan Ashraf Ghani hefur fordæmt ódæðisverkið og þá sem að því standa.