Isavia segir upp 19 starfsmönnum - umsvif hafa minnkað á keflavíkurflugvelli

Í dag tilkynnti Isavia á fundum með starfsmönnum að félagið hafi gripið til uppsagna á Keflavíkurflugvelli í kjölfar brotthvarfs Wow air. Um er að ræða starfsmenn sem starfa meðal annars við öryggisleit og farþegaþjónustu.

Uppsagnirnar ná til 19 starfsmanna og til viðbótar verður 15 starfsmönnum boðið lægra starfshlutfall. Isavia hefur einnig dregið úr sumarráðningum ásamt því að fjölmörgum fyrirhuguðum ráðningum hafði verið frestað og breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi vaktakerfa. Þessar aðgerðir hafa þegar náð til ýmissa starfsstöðva Isavia.

„Uppsagnirnar koma aðallega til vegna brotthvarfs Wow air í mars síðastliðnum. Einnig hefur breytt flugáætlun Icelandair í kjölfar kyrrsetninga á MAX vélum Boeing haft áhrif. Umsvif í þjónustu vegna millilandaflugs eru minni en áætlanir gerðu ráð fyrir, því er óhjákvæmilegt annað en að grípa til þessara aðgerða,“ segir í tilkynningu sem Isavia sendi frá sér vegna málsins.