Isavia neitar að afhenda flugvélina þrátt fyrir úrskurð dómstóla

Flugvélaleigufyrirtækið ALC greiddi í morgun samtals 87 milljónir krónur til Isavia. Kemur greiðslan vegna þeirra uppsafnaðra gjalda sem flugvélin TF-GPA hafði safnað er hún flaug fyrir WOW air. Samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjaness ber eiganda vélarinnar eingöngu að greiða þau gjöld sem hefðu safnast vegna gjalda tengdra þessari vél, en ekki þá rúma 2 milljarða sem Isavia krefst að fyrirtækið greiði. 

Þrátt fyrir greiðslur ALC mun Isavia ekki afhenda þeim vélina. Í samtali við Hringbraut sagði Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, að fyrir Isavia væri staðan óbreytt þrátt fyrir þessar greiðslur. Telur Isavia að misvísandi forsendur hafi komið fram í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness og hafa kært þann úrskurð til Landsréttar. ALC hefur krafist þess að flugvélin verði afhent fyrir klukkan 14:00 í dag.

Aðspurður um hvort þessar aðgerðir séu ekki að skapa þær aðstæður að ALC gæti farið í skaðabótamál við Isavia gat Guðjón ekki svarað því. Fari svo að Landsréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjaness getur ALC líklega krafist bóta vegna tafa á afhendingu flugvélarinnar. Getur því tap Isavia, sem er orðið um 2 milljarðar, orðið enn meira.