Aðalheiður Héðinsdóttir forstjóri Kaffitárs, sem lengi rak kaffisölu í Leifsstöð, gagnrýndir stjórnendur Isavia harðlega í grein í Fréttablaðinu í dag og segir þá hafa vísvitandi brotið reglur um upplýsingalög til að þurfa ekki að svara fyrir umdeilt útboð á veitingarými í Leifsstöð.
Greinina kallar hún "Makalaust framferði Isavia" en þar reifar hún hversu ógagnsætt útboð þessa opinbera fyrirtækisins var á sínum tíma þegar svo að segja öllum íslenskum fyrirtækjum var skipt út úr Leifsstöð fyrir erlenda kaupahéðna. Stjórn Isavia hafi verið svo staðráðin í að koma í veg fyrir að þátttakendur í samkeppninni gætu kannað hvort annarlegar eða ómálefnalegar ástæður hefðu ráðið vali á söluaðilum í Leifsstöð að hún hafi eytt öllum gögnunum, þvert á þá kröfu úrskurðarnefndar um upplýsingamál að Isavia bæri að afhenda gögnin. Aðalheiður segir að úrskurðarnefndin hafi verið gáttuð á þessu framferði stjórnenda Isavia og hafi fundist ástæða til að minna þá á lög um opinber skjalasöfn sem Isavia virðist hafa brotið. "Sú spurning verður áleitin," skrifar Aðalheiður "hvort Isavia eyddi gögnunum áður en niðurstaða samkeppninnar lá fyrir eða hvort það var gert eftir að Kaffitár bað um gögnin 21. ágúst og opinber umræða umn leynimakk hófst," spyr forstjórinn.
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu sem fyrr segir að Isavia bæri að afhenda gögnin vegna formlegrar kvörtunar Kaffitárs, en þeim var sumsé eytt í staðinn. Aðalheiður segir að hér sé á ferðinni mikið hagsmunamál fyrir almenning. "Á mannamáli þýðir þetta að engar fundargerðir, engin vinnuskjöl eða minnisblöð, engin greinargerð eða glærukynning er til hjá fyrirtækinu sem útskýrir hvers vegna valnefnd lagði til við stjórn Isavia að gengið yrði til samninga við teltekin fyrirtæki," skrifar Aðalheiður.