Isavia á að vera einkarekið

Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og forstjóri Icelandair segir að nauðsynlegt sé að skipta rekstri Isavia upp þannig að rekstur flugstöðvar og tengdrar þjónustu verði sjálfstæður. Ríkið gæti ekki borið ábyrgð og tekið áhættuna af uppbyggingunni við flugstöðina í Keflavík. Björgólfur telur eðlilegt að ríkið eigi flugbrautirnar sjálfar en að þjónustan við ferðamenn og vöruflutninga verði á ábyrgð annarra. Þetta kom fram í máli Björgólfs á fundi Samtaka atvinnulífsins i gær í Hörpu.

Framundan eru tugmilljarða króna fjárfestingar til að bæta þjónustu við fjölgandi flugfarþega á Keflavíkurflugvelli á næstu árum. Fram að þessu hafa þær átt sér stað undir hatti Isavia sem er að fullu í eigu ríkisins. Þessar fjárfestingar eru í eðli sínu áhættusamar, benti Björgólfur á. 

Í máli hans kom einnig fram að á þessu ári er gert ráð fyrir að ferðaþjónustan afli yfir 400 milljarða króna í útflutningstekjur.  Hlutur greinarinnar í heildarútflutningstekjum verði um 34 prósent og rekja megi um eitt af hverjum þremur störfum sem skapast hafa frá 2010-2015 til ferðaþjónustunnar.

Björgólfur nefnir að tekjur ríkissjóðs hafa aukist svo milljörðum skiptir undanfarin ár vegna aukins greinarinnar og að þess vegna geti umræða um ferðaþjónustuna ekki snúist eingöngu um aukna gjaldtöku.