England og Englendingar bera slíkan ægishjálm yfir öll eyríki sínu að nöfn þeirra koma oftar í stað Bretlands og Breta. Þetta á einnig við um \"fjórða\" landið í Sameinaða konungdæminu Norður-Írland.
Það telur sig þó tengt Sameinað konungdæminu traustum böndum. Og ríkisstjórn Theresa May forsætisráðherra þiggur stuðning þingmanna frá Norður-Írlandi til að verja minnihluta stjórn hennar vanrausti.
Þegar tímar liðu skildi mjög á milli Írska lýðveldisins og Norður-Írlands bæði í stjórnmálum og efnahagsmálum. Þegar Írlandi var veitt sjálfstæð árið 1920 börðust Norður-Írar gegn því með hnúum og hnefum að sameinast þessu nýja ríki. Síðan hafa þeir haldið fast í bandalagið við Breta.
Sameining við Írland er ekki á dagskrá. Ríki Evrópusambandsins (ESB) hafa gefið Bretum fremu óvægilega í skyn að þau geta vel komist af án Breta. Á fundum í Brussel í dag kann svo að fara að afstað Írlands ráði öllu um framhald Brexit viðræðna ESB og Breta.
Hversu slyngir írskir stjórnmálamenn eru kemur í ljós í Brussel í dag. Greiða þeir götu útgöngu Breta úr EBS eða torvelda þeir Brexit áform Breta? Eitt er víst og það er að viðhorf alþýðu manna á Írlandi til Breta hefur lítið breyst. Það vegur þungt en efnhagshagsmunir Írlands vega einnig þungt.