Samkvæmt nýrri Gallup-könnun tapa Vinstri græn 3 þingmönnum frá síðustu kosningum og Framsókn einum. Þannig hefði ríkisstjórnin ekki nema 31 þingmann á bak við sig og væri þar með fallin. Þetta er sama niðurstaða og Gallup-kannanir hafa sýnt frá því í fyrrasumar.
Sjálfstæðisflokkurinn er með óbreytt fylgi frá síðustu kosningum, 25% og 16 þingmenn. Fylgi flokksins batnaði aðeins í febrúar. Væntanlega er hægt að rekja það til verkfallshótana og líklegra óeirða á vinnumarkaði. Við slíkar aðstæður lagast fylgi flokksins yfirleitt þar sem margir kjósendur líta á flokkinn sem vörn gegn glundroða á vinnumarkaði.
Viðreisn bætir við sig 3 þingmönnum frá síðustu kosningum og er komin í 10% fylgi. Samfylkingin bætir einnig við sig 3 þingmönnum og Píratar bæta við sig einum þingmanni. Þannig bæta þessir Evrópusinnuðu flokkar við sig 7 þingsætum samtals.
Sósíalistaflokkurinn rétt næði lágmarki til að koma að þingmönnum og fengi 5% sem skilaði þeim 3 þingmönnum. Flokkur fólksins er að þurrkast út og kæmi engum manni að. Svo virðist sem Sósíalistaflokkurinn sé að taka fylgi Flokks fólksins yfir. Miðflokkurinn fengi 5 menn kjörna í stað 7 í kosningunum.
Könnun Gallups stóð yfir allan febrúarmánuð og var netkönnun. Úrtakið var 7.060 kjósendur sem valdir voru af handahófi.