Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir verktaka veigra sér við að leita sér réttar síns gagnvart innviðagjöldum af ótta við afleiðingar sem það kunni að hafa á framtíðarverkefni þeirra. Hann segir innviðagjöld hugsanlega ólögmæt og að samtökin séu að skoða hvað hægt sé að gera. Fréttablaðið greinir frá.
Hart hefur verið deilt á þessi gjöld í gegnum tíðina og fengu SI lögfræðiálit frá Lex lögfræðistofu, þar sem niðurstaðan var sú að sterk rök væru fyrir því að gjaldið væri ólögmætt. Áætlað er að fjármagna pálmatrén í Vogabyggð með slíkum gjöldum lóðarhafa.
Almannatengillinn Friðjón Friðjónsson sagði í Morgunútvarpi Rásar 2 á föstudaginn að hann þekkti aðila sem stæðu í byggingarverkefnum og segðu sögur af hótunum undir rós um að menn myndu ekki fá deiliskipulag ef þeir greiddu ekki þessi gjöld.
Aðspurður út í ummæli Friðjóns sagði Sigurður í samtali við Fréttablaðið: „Okkar félagsmenn kannast við að borgin sé í yfirburðastöðu við þessa samningagerð. Við höfum heyrt dæmi um þetta og hérna er um að ræða býsna háar fjárhæðir í gjaldtökunni. Fjárhæðir sem kannski hlaupa á hundruðum milljóna fyrir hvert verkefni. Án þess að vera með heildaryfirsýn þá sýnist mér að tekjur Reykjavíkurborgar á síðustu árum hlaupi á milljörðum króna. Það er stærðargráðan.“
Sigurður segir að þótt borgin tali um samninga milli aðila í þessum efnum þá sé borgin í algjörri yfirburðastöðu.