Innlit í skattaskjól og næsta stjórn

 

Indriði H. Þorsteinsson, fyrrverandi ríkisskattsstjóri, og Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði, verða gestir í Þjóðbraut í kvöld.

Eiríkur metur stöðuna í stjórnmálunum og hvort líklegt sé hvort Katrínu Jakobsdóttur takist að mynda ríkisstjórn, ríkisstjórn fimm flokka. Mikil spenna er í loftinu og hún magnast stöðugt.

Indriði er með fróðari mönnum hvað varðar skattaskjól og skattaundanskot. Hann fræðir okkur um hvað skattaskjól eru, hvers vegna fólk kýs að vera með bankareikninga þar og hvað er unnt að gera, eigi að koma í veg fyrir að það sé hægt.

Að venju er Þjóðbraut á dagskrá klukkan 21:00.

-sme