Innkoma costco

Innkoma Costco hefur svo sannarlega hreyft við verslunarmynstrinu á Íslandi. Viðbrögð neytenda hafa ekki látið á sér standa. Of snemmt er að segja hver áhrifin af innkomu Cosco verða. Á það bæði við um markaðshlutdeild  Costco á smásölu- og heildsölumarkaði og um áhrif Costco á verðlag. Verslunin opnaði hinn 23. maí sl.og hefur því verið starfrækt í þrjár vikur. Tölur sem fjölmiðlar hafa undir höndum ná ekki til veltu Costco. Af þeim tölum sem eru fyrirliggjandi um veltu frá verslunum í samkeppni við Costco þá jókst heildarumfang þessara verslana miðað við eldri tölur. Á þetta við um dagvöruverslun og raftækjaverslun. 

rtá

Nánar www.rsv.is