Kosningaþátttaka innflytjenda í sveitarstjórnarkosningum dróst verulega saman frá árinu 2006 til 2014, samkvæmt niðurstöðum starfshóps um bætta kosningaþátttöku innflytjenda, að því er fram kom á RÚV í morgun.
Árið 2006 nýttu 40 prósent innflytjenda kosningarétt sinn. Hlutfallið var komið niður í 21 prósent í sveitarstjórnarkosningum árið 2014. Hópurinn skilar niðurstöðum sínum til borgarstjórnar Reykjavíkur í dag og umræður verða um það hvernig virkja megi kosningaþátttöku innflytjenda.
„Stórt atriði er að okkur er ekki að ganga nógu vel að miðla upplýsingum.Hvorki um að fólk sé yfirleitt með þennan kosningarétt Né hvað heyrir undir sveitarstjórnarstigið og þannig vekja áhuga á að nýta kosningaréttinn. Né um flokkanna og stefnumál þeirra, þannig að upplýsingamiðlunin okkar er að klikka dálítið,“ sagði Unnur Margrét Arnardóttir, formaður starfshópsins í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun þar sem rætt var við hana og Pawel Bartoszek, fyrrverandi þingmann Viðreisnar um málið.