Innfluttir kjúklingar að klárast

Ótímabundið verkfall dýralækna innan Bandalags háskólamanna er farið að hafa veruleg áhrif í matvælavinnslu og matvælainnflutningi hér á landi og er allt útlit fyrir að kjötskorts fari að gæta undir næstu helgi.


Dýralæknar þurfa ekki aðeins að vera viðstaddir slátrun dýra hjá innlendum matvælaframleiðendum heldur verður allt innflutt kjöt að vera vottað af þeim, meðal annars vegna reglna um smitsjúkdóma. Á meðan bíða hundruð tonna af kjöti í frystigámum á hafnarbökkum hér á landi og fást ekki afgreidd til vinnslu í landi fyrir neytendamarkað.


Ljóst er að verulegs skorts á kjúklingi, bæði ferskum og frostnum fer að gæta undir helgi, svo og á nautahakki og nautahamborgurum, en innanlandsframleiðslan á nautakjöti annar ekki eftirspurn hér á landi. Þá óttast svínabændur mjög sinn hag en ferskt svínakjöt er ekki til í landinu og eru svínabú þeirra að fyllast af stálpuðum grísum sem komnir eru í sláturstærð.