Framleiðendur Fast and the Furious 8 eru sagðir hafa losað sig við mikið magn af alls konar hlutum til gámastöðva og sorpsvæða eftir að tökum lauk. Urmull af tækjum og tólum var fluttur inn fyrir kvikmyndatökuna á ísi lögðu Mývatni og fór ekki nema brot af búnaðinum aftur út.
Dýrustu bílar sögunnar, Lamborghini, voru hluti þess sem flutt var til landsins. Lamborghini bílarnir fóru ekki á haugana að lokinni notkun en ódýrari ökutæki og ýmsir leikmunir sem fluttir voru inn eru sögð hafa endað á haugunum. Sú skýring hefur verið gefin af starfsmanni sem Hringbraut hefur rætt við að ekki hafi borgað sig að greiða þau gjöld sem hefði þurft til að fara með dótið aftur til Hollywood.
Þá foru \"ísjakar\" úr frauðplasti fyrirferðarmiklir þegar kom að því að skila sorpi en tökum lauk með hasar og sprengingu í Langavatni.
Eftir því sem Hringbraut kemst næst voru öll gjöld greidd við skil á kvikmyndabúnaði til sorphirðustöðva og er talað um uppgrip. Mikið magn af sorpi er sagt hafa farið á gámastöðvar á Akureyri en Mývatnssveit er verndað svæði um 100 km frá Akureyri. Hundruð manna störfuðu við tökurnar á myndinni og mestallt gistirými Mývetningar var fullnýtt vikum saman á árstíma sem alla jafna er rólegur.
Tökur fóru einnig fram á Vesturlandi.