Félag atvinnurekenda telur að íslensk stjórnvöld hafi í tíu ár brotið ákvæði EES-samningsins með íslensku ákvæði um frystiskyldu á innflutt kjöt. Frá þessu er sagt á vefsíðu RÚV og vefsíðu félagsins.
Samkvæmt íslenskum lögum er innflutningur á fersku kjöti bannaður. Innflutt kjöt verður að hafa verið fryst og verið frosið í þrjátíu daga. Ákvæðið er talið ýta undir kjötskort og það hækki vöruverð.
Bent er á að bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og dómstóll EFTA hafa dæmt frystiskylduna lögbrot. Málið fer fyrir Hæstarétt á þessu ári eða því næsta.
rtá
Nánar www.ruv.is www.atvinnurekendur.is www.eftacourt.int