Innflutningur á kjöti eykst stórum

Innflutningur á svínakjöti jókst um 40% á síðasta ári og er nú hlutdeild þess á markaði hér á landi kominn yfir 25%, en innlenda framleiðslan hefur lítið aukist á síðustu árum á sama tíma og erlendum ferðalöngum hefur fjölgað ört.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, en þar segir að þörf veitinga- og gististaða fyrir beikon í morgunmat fyrir stöðugtt fleiri ferðamenn eigi þátt í því að innflutningur á svínakjöti hafi stóraukist á síðustu misserum.

Innflutningur á öðru kjöti hefur einnig aukist verulega, svo sem á nautakjötiu, en 35% aukning varð á innfutningi þess á síðasta ári.