Innanlandsflugi á vegum Air Iceland Connect milli Akureyrar og Reykjavíkur, Egilsstaða og Reykjavíkur og Ísafjarðar og Reykjavíkur hefur verið aflýst í dag vegna veðurs. Fréttablaðið greinir frá.
Aflýsingarnar stafa fyrst og fremst af af appelsínugulri viðvörun á Suðurlandi og gulri viðvörun á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa, Suðausturlandi og miðhálendinu, enda eru viðvaranir ekki í gildi á Austurlandi eða Vestfjörðum.
Í samtali við Fréttablaðið segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, að vindátt hafi verið óhagstæð á Ísafirði og því hafi verið ákveðið að aflýsa fluginu. Hann býst ekki við röskun á millilandaflugi en að fylgst verði grannt með stöðu mála. Flug er á áætlun frá og með klukkan sjö í fyrramálið.