Samgöngur á lofti, láði og legi hafa raskast verulega af völdum óveðursins sem farið hefur um svo að segja allt landið í gær og í morgun. Til að mynda liggur allt innlandsflug niðri og verður athugað fyrst með flug klukkan 11:00. Minniháttar röskun er á millilandaflugi.
Strætósamgöngur úti á landi hófust víða um og upp úr klukkan 08:00, en farþegar eru beðnir að fara inn á vef Strætó til að ganga úr skugga um að akstur sé hafinn á þeim svæðum sem þeir hyggjast ferðast um. Akstursþjónusta Strætó mun ekki hefjast að svo stöddu, en allar ferðir fyrir klukkan 10:00 hafa vrið felldar niður.
Mesti vindur á að vera genginn yfir um klukkan 8 og verða vagnarnir komnir á rétt ról um klukkan 8:30 samkvæmt leiðakerfi. Farþegar eru beðnir um að fylgjast með vögnum á rauntímakorti ef þeir hafa tök á því.