Jóhannes Gunnar Bjarnason, kennari á Akureyri og fyrrum oddviti framsóknarmanna í bæjarstjórn, segir fargjöld Flugfélags Íslands í innanfluginu ekki boðleg. Hægt sé að fljúga langleiðina til andskotans í millilandaflugi fyrir sama pening og kosti að fljúga innanlands.
Tilefni skrifa Jóhannesar, sem féllu á fésbók kennarans, er öðrum þræði pistill konu í Fréttablaðinu um verðlagningu Flugfélags Íslands á innanlandsfluginu. Þar var greint frá kostnaði sem vístölufjölskylda frá Austurlandi þarf að bera til að ferðast til Reykjavíkur, t.d. vegna heilbrigðisþjónustu. Ein ferð kostar vel á annað hundrað þúsund króna með tvö börn eldri en 12 ára.
„Þetta er einfaldlega ekki boðlegt. Venjulegir launþegar hafa ekki efni á þessu okri. Það er hægt að fljúga langleiðina til andskotans ef peningunum er varið í flug til annara landa. Ástæðan fyrir að þetta er að ergja mig meira en vanalega eru viðskipti mín við áðurnefnt fyrirtæki [Flugfélag Íslands] fyrir skömmu,“ skrifar kennarinn.
Hann segist þá hafa verið að koma frá útlöndum og hafi átt bókað flug til Akureyrar.
„Flugið að utan var á áætlun og vel það þannig að ég ákvað að kanna hvort hægt væri að komast fyrr norður með annarri vél. Það var nóg laust en sá smávægilegi galli fylgdi viðskiptunum að ég þurfti að greiða sextánþúsund krónur í breytingagjald ef viðskiptin ættu að eiga sér stað fyrir þessi tvö sæti! Svo eru forsvarsmenn Flugfélags Íslands daufir í dálkinn vegna fækkunar farþega í innanlandsflugi,\" skrifar kennarinn geðþekki, Jóhannes Gunnar Bjarnason.
Algengt verð á flugmiða fram og til baka milli Akureyrar og Reykjavíkur er samkvæmt athugun Hringbrautar rúmar 40.000 krónur fyrir einn fullorðinn. Milli Egilsstaða og Reykjavíkur getur kostað fram og til baka krónur 45.000 að fljúga ef ekki er bókað með fyrirvara en með því fæst stundum verulegur afsláttur.
Reglulega fer fram umræða í samfélaginu, einkum í dreifðari byggðum, hvort hið opinbera eigi að niðurgreiða innanlandsflug sem almannasamgöngur líkt og strætó.