Innanhússerjur pírata skaða flokkinn

Einn gamalreyndasti ritstjóri landsins sem þróað hefur nef sitt fyrir pólitískum greiningum um margra áratugaskeið, segir augljóst að fylgistap Pírata eins og það mældist í könnun Gallup sem kynnt var í gær megi skýra með augljósum innanhússerjum.

Jónas Kristjánsson, fyrrum ritstjóri á DV og Vísi svo nokkuð sé nefnt, segir í bloggfærslu að þótt fylgi Framsóknar hafi hrunið eftir uppljóstranir um Sigmund Davíð, hafi fylgi stjórnarflokkanna staðið í stað. \"Flóttafólkið úr Framsókn fór nefnilega ekki til stjórnarandstöðunnar, heldur til Sjálfstæðisflokksins. Þannig er fylgi bófaflokkanna samtals enn um þriðjungur þjóðarinnar. Fastafylgi bófaflokkanna hefur fyrir löngu fundið þar sinn botn og fer ekki neðar, þótt skjálfi himinn og jörð.\"

Hin fréttin úr könnun Gallup, segir Jónas, er flótti 3% kjósenda frá vinstri kanti Pírata yfir til Vinstri grænna.

\"Ég sé þar afleiðingar augljósra innanflokkserja pírata. Veita kjósendum ekki lengur öryggistilfinninguna, sem þeir áður veittu. Sumir efast um, að staðið verði við stutt kjörtímabil með nýrri stjórnarskrá.\"

Komið hefur fram á Pírataspjallinu sem og í fréttum síðustu mánuði að Píratar eru ekki samstíga í stórum málum og hafa þung orð fallið milli Helga Hrafns og Birgittu Jónsdóttur, tveggja af þremur þingmönnum flokksins. Vinnustaðasálfræðingur var fenginn á dögunum til að bæta andrúmsloftið. Skv. fyrri fylgiskönnunum hafa Píratar stundum nálgast 40% fylgi hjá þjóðinni.