Píratar hafa birt opinbera skýringu á innanflokksátökum í röðum sínum og segja þar að það hafi ekki farið framhjá neinum að undanfarna mánuði hafi álagið á þeim fáu kjörnu fulltrúum sem Píratar hafi á þingi og í sveitastjórn margfaldast.
\"Við þingmenn Pírata höfum, eins og oft vill verða undir miklu álagi, átt í samskiptaörðugleikum,\" segir í tilkynningu frá öllum þremur þingmönnum pírata sem segjast þrátt fyrir allt vera lausnamiðað fólk sem hafi því hafist handa við að vinna úr þessum örðugleikum undir handleiðslu vinnustaðasálfræðings.
\"Það hefur verið mannbætandi ferli sem við þingmennirnir njótum nú þegar góðs af með lausnamiðari aðferðafræði um hvernig má vinna betur saman með umburðarlyndi og sátt að leiðarljósi. Það er samhugur meðal þingflokksins að leysa innri ágreining á sem farsælastan hátt og þess vegna höfum við ákveðið í sameiningu að fara þessa leið. Hún hefur þegar borið mikinn árangur á skömmum tíma. Málstaður okkar og stefnumál eru stærri en hvert okkar. Við erum miklu sterkari sameinuð heldur en sundruð og við í þingflokki Pírata teljum okkur koma sterkari og samheldnari út úr þessu heldur en nokkru sinni fyrr.\"
Undir þessi orð skrifa allir þrír þingmenn pírata, Ásta Guðrún Helgadóttir Birgitta Jónsdóttir og Helgi Hrafn Gunnarsson.