Hann segir í samtali við RÚV í gærkvöld að mikilvægum áföngum hafi verið náð í rekstri RÚV en ljóst sé að fram undan séu umfangsmikil verkefni við að móta framtíð félagsins. „Við þær aðstæður tel ég nauðsynlegt að formaður stjórnar Ríkisútvarpsins eigi þess kost að sinna hinum brýnu viðfangsefnum af kostgæfni,“ segir í yfirlýsingu Ingva Hrafns.
Hann þakkar í yfirlýsingu sinni fyrir þann eindregna stuðning „mennta-og menningarmálaráðherra sem stjórn og stjórnendur Ríkisútvarpsins hafa notið.“
Nýlega kom út skýrsla um stöðu RÚV - þar kom meðal annars fram að rekstur þess hefði ekki verið sjálfbær frá árinu 2007 og að taprekstur hefði verið á 4 af þeim 8 árum sem liðin eru frá ohf-væðingu stofnunarinnar..
Stjórn RÚV sendi frá sér tilkynningu vegna skýrslunnar þar sem meginefni hennar var mótmælt.