Fátt hefur komist til tals á kaffistofum landsins í dag annað en ummæli Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra í garð Vigdísar Hasler framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands. Í gær greindi Fréttablaðið og DV frá málinu og í dag opnaði Vigdís sig um það og í kjölfarið baðst Sigurður Ingi afsökunar.
Ummæli Ingveldar Sæmundsdóttir, aðstoðarmanns Sigurðar Inga, um málið hafa vakið mikla athygli og furðu, sérstaklega eftir að Sigurður viðurkenndi að hafa látið óviðeigandi ummæli falla um Vigdísi.
Ingveldur þvertók í gær fyrir að Sigurður Ingi hefði haft óviðeigandi ummæli um Vigdísi. Það gerði hún bæði í samtali við Fréttablaðið og DV.
Nú hefur hún sent RÚV skriflegt svar um málið þar sem hún segir: „Í svari mínu til DV í gær var ég segja frá því sem ég heyrði og varð vitni að og var það ekki borið undir ráðherra,“