Ingveldur er látin: „hún var táknmynd þess að gefast aldrei upp“

Ingveldur Geirsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 26. apríl síðastliðinn, 41 árs að aldri, eftir baráttu við krabbamein. Fjallað er ítarlega um þessa öflugu blaðakonu í Morgunblaðinu í dag.Þar segir:

Ingveldur fæddist hinn 19. nóvember 1977 á sjúkrahúsinu á Selfossi. Foreldrar hennar eru þau Geir Ágústsson, fæddur 11.1. 1947, og Margrét Jónína Stefánsdóttir, fædd 19.8. 1948. Ingveldur ólst upp á heimili foreldra sinna í Gerðum í Gaulverjabæjarhreppi, nú Flóahreppi. Hún gekk í Barnaskóla Gaulverja til 13 ára aldurs og fór þaðan í Gagnfræðaskólann á Selfossi. Hún hóf nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands árið 1993 en gerði hlé á námi sínu árið 1996 þegar hún fór til Bretlands sem au-pair. Hún brautskráðist af viðskiptabraut Fjölbrautaskóla Suðurlands árið 1997, flutti þá til Reykjavíkur og vann þar ýmis þjónustustörf. Árið 1999 hóf hún nám við bændadeild Landbúnaðarháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan sem búfræðingur árið 2001. Sama ár hóf hún nám í bókmenntafræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan með BA-próf í bókmenntafræði með þjóðfræði sem aukagrein árið 2004. Að því loknu lá leið hennar beint í meistaranám í blaða- og fréttamennsku við HÍ sem hún kláraði árið 2011 þegar hún skilaði meistararitgerð sinni: „Er landsbyggðin í fréttum?“

Ingveldur hóf störf hjá Morgunblaðinu árið 2005 og var blaðamaður fyrir Daglegt líf og menningardeild blaðsins áður en hún hóf störf á fréttadeild. Ingveldur venti kvæði sínu í kross um áramótin 2013 og hóf störf hjá 365 miðlum sem fréttamaður Stöðvar 2 en flutti sig aftur yfir á Morgunblaðið undir lok árs. Þar starfaði hún sem blaðamaður á fréttadeild til loka og sinnti aðallega innlendum fréttaskrifum. Auk þess gegndi hún stöðu kvöld- og helgarfréttastjóra og fréttastjóra blaðsins í afleysingum.

\"\"Ingveldur sat í stjórn Blaðamannafélags Íslands, fyrst í varastjórn árin 2014-2015 og síðan í aðalstjórn árin 2015-2019. Eftir að Ingveldur greindist með krabbamein árið 2014 starfaði hún um tíma með samtökunum Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur, og sat meðal annars fyrir á mynd sem notuð var í herferð til vitundarvakningar um ungt fólk og krabbamein.

Ingveldur var mikil sveitamanneskja og nýtti sem flestar stundir til að renna austur fyrir fjall í Flóann til að hjálpa við bústörf í Gerðum og kynna börnum sínum sveita- og dýralífið. Hún fór nokkrum sinnum á fjall inn á Flóamannaafrétt og naut sín mikið sem fjallmaður. Síðustu árin náði hún að sinna hestamennskunni af meira kappi, hafði hest á húsi í Reykjavík og fór í hestaferðir. Hún var mikill bókaunnandi, frá barnsaldri las hún hverja bókina á fætur annarri og hafði mikinn áhuga á bókmenntum, tónlist og annarri menningu. Einlægur áhugi hennar á fólki og samfélaginu leiddi hana og studdi íblaðamannastarfinu enda átti hún auðvelt með að kynnast fólki og skapa tengsl.

Ingveldur var önnur í röð fjögurra systkina en þau eru 1) Þórdís, fædd 27. janúar 1976, eiginmaður Þórir Jóhannsson, fæddur 18. ágúst 1972, og eiga þau tvo syni, 2) Stefán, fæddur 30. maí 1981, eiginkona Silja Rún Kjartansdóttir og eiga þau fjórar dætur, 3) Hugrún, fædd 28. nóvember 1985, eiginmaður Hörður Sveinsson og eiga þau þrjú börn. Eiginmaður Ingveldar er Kristinn Þór Sigurjónsson, fæddur 23. febrúar 1972. Börn Ingveldar eru Ásgeir Skarphéðinn Andrason, fæddur 15. mars 2008, Gerður Freyja Kristinsdóttir, fædd 6. apríl 2015, og þrjú stjúpbörn; Steinunn Helga Kristinsdóttir, fædd 2. júní 1991, og á hún einn son Alan Þór Solquist, fæddan 1. september 2016, Sigurjón Þór Kristinsson, fæddur 14. apríl 2004, og Kristín Þórunn Kristinsdóttir, fædd 21. apríl 2005.

Samvistir við fjölskyldu og vini voru Ingveldi mikilvægar og skilur hún eftir sig stórt skarð í ástvinahópi. Samstarfsfólk Ingveldar á Morgunblaðinu sendir fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Ingveldur var öflugur og hugmyndaríkur blaðamaður en umfram allt var hún vel liðinn samstarfsmaður og vinkona sem verður sárt saknað.

Þá er einnig fjallað um þessa öflugu blaðakonu í leiðara Morgunblaðsins. Þar segir:

Ingveldur starfaði á Morgunblaðinu lengst af frá því hún hóf störf fyrir fjórtán árum og þar til hún lést sl. föstudag eftir að hafa barist við krabbamein í fimm ár. Ingveldur hvarf skamma hríð til starfa á öðrum miðli. Ekki er endilega sjálfgefið að kostur sé á starfi á fyrri vinnustað þegar svo er, enda þá búið að fylla í opna stöðu. Skarð Ingveldar var hins vegar ekki auðfyllt og því var tekið fagnandi þegar hún kaus að koma aftur á Morgunblaðið.

Ingveldur var öflugur og farsæll blaðamaður og tók að sér ýmis störf á ritstjórn Morgunblaðsins og sinnti þeim öllum með sóma. Fyrir lá að hennar beið björt framtíð á þeim vettvangi hefðu örlögin orðið önnur. En fyrir Ingveldi átti að liggja að glíma við miskunnarlausan sjúkdóm og þótt hún tæki fast á móti og af einstöku og aðdáunarverðu æðruleysi og hugprýði sigraði meinið að lokum.

Framganga Ingveldar, meðal annars á opinberum vettvangi, var hins vegar öllum mikil hvatning og þá ekki síst þeim sem lenda í svipuðum aðstæðum og svo harkalegum mótbyr. Hún var táknmynd þess að gefast aldrei upp en njóta lífsins til fulls og þess tíma sem gæfist.

Missir Morgunblaðsins er mikill en þó léttvægur í samanburði við söknuð og sorg nánustu fjölskyldu. Morgunblaðið kveður með þökk og sendir fólkinu hennar sínar innilegustu samúðarkveðjur.