Ingvar E. Sigurðsson var í gær valinn besti leikarinn á Critics‘ Week, einni af hliðardagskrám Cannes kvikmyndahátíðarinnar, fyrir hlutverk sitt í kvikmynd Hlyns Pálmasonar, Hvítur, hvítur dagur. Cannes kvikmyndahátíðin er ein sú stærsta í heiminum og því um mikinn heiður að ræða.
„Að fá verðlaun hér er stórkostlegur heiður,“ segir Ingvar í samtali við Mbl.is. Hann segir að um sé að ræða stærstu kvikmyndahátíð í heimi og að það sé rosalegt afrek að komast inn á dagskrá þar, þó um sé að ræða hliðardagskrá.
Ingvar segir einnig að það sé mikill heiður fyrir Íslendinga að vinna til verðlauna í Cannes annað árið í röð. Í fyrra vann Kona fer í stríð, undir leikstjórn Benedikts Erlingssonar, til fernra verðlauna á Critics‘ Week, þar á meðal SACD verðlaunin fyrir besta handrit.
Hvítur, hvítur dagur segir frá Ingimundi lögreglustjóra, sem hefur verið í starfsleyfi frá því að eiginkona hans lést óvænt af slysförum. Í sorginni einbeitir hann sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu, þar til athygli hans beinist að manni sem hann grunar að hafi átt í ástarsambandi við konu sína. Fljótlega breytist grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitna einnig á þeim sem standa honum næst. Þetta er saga um sorg, hefnd og skilyrðislausa ást.
Miklu meira en bara kvikmynd
Ingvar leikur Ingimund og hefur fylgt karakternum lengi. „Ég er búinn að fá karakterinn inn í hjartað í fimm ár en Hlynur skrifaði þetta með mig í huga. Karakterinn er búinn að lifa með mér lengi. Ég vann með Hlyni í útskriftarverkefninu hans úr Kvikmyndaskólanum og þá áttaði ég mig fljótlega á því að ég var að vinna með manni sem er ekki bara kvikmyndagerðarmaður, hann er meira. Hann er risastórt kvikmyndaskáld,“ segir Ingvar við Mbl.is.
Hann segir að það komi berlega í ljós hversu mikið kvikmyndaskáld Hlynur sé. „Þetta er ekki bara kvikmynd, þetta er miklu, miklu meira en það.“
Ingvar telur myndina á alveg sérstökum stað. „Ekki bara á íslensku vísu heldur, finnst mér, á heimsvísu. Margir hafa talað um það hérna og viðbrögðin við myndinni eru svo sterk.“
Lofsamlegir dómar og standandi lófatak
Það er ekki ofsögum sagt hjá Ingvari því Hvítur, hvítur dagur hefur hlotið afar lofsamlega dóma í erlendum miðlum síðan hún var heimsfrumsýnd á hátíðinni fyrir viku síðan. Viðbrögð áhorfenda létu ekki heldur á sér standa, en Kvikmyndamiðstöð Íslands greindi frá því að viðtökurnar hafi verið frábærar á frumsýningunni, þar sem aðstandendur myndarinnar hlutu langvarandi standandi lófatak.
Hin virtu kvikmyndatímarit Cineuropa, Screen International og The Hollywood Reporter hafa öll lofað myndina í hástert, auk þess sem streymisveitan MUBI gaf henni fimm stjörnur.
Þá hefur myndin þegar verið seld til fjölda landa, meðal annars Póllands, Noregs, Sviss, Tékklands, Slóvakíu og Grikklands.
Hvítur, hvítur dagur verður frumsýnd hér á landi þann 5. september næstkomandi.