Ingvar er nýr ríkisskattstjóri

Ingvar J. Rögnvaldsson hefur verið settur ríkisskattstjóri frá og með 1. maí. Ingvar hefur verið vararíkisskattstjóri frá 1. ágúst 2000.

Ingvar á að baki nær fjögurra áratuga starf innan skattkerfisins. Hann lauk lögfræðiprófi frá HÍ 1977 og stundaði framhaldsnám við Kaupmannahafnarháskóla 1977 til 1979. Hann varð starfsmaður Skattstofu Reykjavíkur 1979 og fór síðar til embættis ríkisskattstjóra.

Skúli Eggert Þórðarson, fráfarandi ríkisskattstjóri, hefur verið kjörinn ríkisendurskoðandi af Alþingi. Hann lét hann af störfum sem ríkisskattstjóri um mánaðamótin, eftir ríflega 11 ár í starfi og alls 37 ára starfsferil innan skattkerfisins.