Ingólfur ræðir everest-för sína

Ingólfur Geir Gissurarson fjallgöngumaður sem komst á topp hæsta fjalls heims, Everest, er gestur heilsu- og útivistarþáttarins Lífsstíls í kvöld, en þar lýsir hann því nákvæmlega hvernig er að takast á við þessa miklu fjallgöngu. Hann komst á toppinn fyrir tveimur árum og var fimmti Íslendingurinn sem vann það afrek.


Everest-fjall hefur mjög verið í fréttum síðustu daga eftir jarðskjálftann mikla í Nepal, en fjöldi fjallgöngumanna og aðsoðarmanna þeirra fórst í hlíðum Everest þegar mörg snjóflóð hrifu þá með sér niður eggjar fjallsins. Íslensku Everest-fararnir Ingólfur Geir Axelsson og Vilborg Arna Gissurardóttir komust heil á húfi frá þeim hamförum og bíða þess nú átekta að halda för sinni áfram. Ingólfur missti raunar þrjá menn úr sínu gönguteymi í flóðunum. Bæði halda þau sig enn í grunnbúðunum og bíða þess sem verða vill.


Ingólfur Geir Gissurarson segir Everest vera jafn stórkostlegt og það er hrikalegt. Í reynd sé það ekki fyrir hugsandi menn að fara upp hættulegustu kafla þess, svo sem þar sem hundrað metra háar ísblokkir blasa við göngumönnum og aðeins er hægt að komast yfir á þröngum álstigum. Það sé eins gott að sá hluti göngunnar sé farinn um nótt, ella sæju menn ofan í hyldýpið sjálft.


Rétt er að taka fram að viðtalið var tekið upp á föstudag, daginn fyrir hamfarirnar miklu í Nepal.


Lífsstíll er frumsýndur klukkan 20.00 á Hringbraut í kvöld.