Ingólfur Örn Friðriksson fær að heita Lúsifer eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur felldi úr gildi úrskurð mannanafnanefndar frá því í fyrra.
Mannanafnanefnd hafnaði nafninu þar sem það teldist „ósiðlegt, niðrandi eða meiðandi“ því að Lúsífer sé eitt af nöfnum djöfulsins. Ingólfur lagði fyrir dóminn yfirlit frá Árnastofnun frá árinu 2004 þar sem gert er grein fyrir 61 ólíkum nöfnum á djöfulinn, Lúsífer var ekki þar á meðal.
Íslenska ríkinu verður gert að greiða 900 þúsund krónur í málskostnað. Ekki liggur fyrir hvort málinu verði áfrýjað.
Ingólfur ræddi málið við Morgunblaðiðí fyrra, þar sagði hann að allir ættu að standa jafnir óháð trúarbrögðum. „Að hafna nafninu Lúsífer á forsendum þess að það sé nafn djöfulsins í einni trú, kristni, finnst mér mismunun. Og mismunun á grundvelli trúarbragða er stjórnarskrárbrot,“ sagði hann.
Þá er djöfullinn hluti af hans trúarbrögðum. „Ég er búinn að vera skráður í Church of Satan síðan 2001 og er búinn að íhuga nafnabreytingu í mörg ár út frá lítilli hefð meðlima kirkjunnar að taka upp nöfn sem tengjast satanisma.“