Ingólfur Þórarinsson, best þekktur sem Ingó Veðurguð, krefst þess að Kristlín Dís Ingilínardóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu, greiði sér 3 milljónir króna í miskabætur fyrir að skrifa frétt á vef Fréttablaðsins 3. júlí síðastliðinn sem innihélt fimm ummæli um Ingó.
Greint er frá þessu á vef Fréttablaðsins.
Þess er krafist að hún biðji Ingó afsökunar, viðurkenni að ummælin séu röng og dragi þau til baka. Þá afsökunarbeiðni og leiðréttingu skuli birta á forsíðu vefs Fréttablaðsins og þess krafist að hún standi þar í minnst 48 klukkustundir.
Gefinn er frestur til að verða við þessum kröfum til 19. júlí næstkomandi.
Þá krefst Vilhjálmur Vilhjálmsson lögmaður Ingó að hún greiði sér 250 þúsund krónur í lögmannskostnað.