Ingólfur Þórarinsson, best þekktur sem Ingó Veðurguð, mun ekki sjá um brekkusönginn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár. Ingó segir í samtali við Vísi að Þjóðhátíðarnefnd hafi látið hann vita í gær að hans væri ekki óskað á Þjóðhátíð. Ástæðan er ásakanir af hálfu stórs hóps kvenna.
Ingó segir í samtali við Vísi að hann hafi verið látinn vita af ákvörðuninni í gær. „Þeir létu mig vita í gær að þeir ætluðu að afbóka mig á hátíðina.“
Hann er ekki sáttur:
„Ég er ósáttur við það og ég mun bregðast við þessu af fullum þunga.“
Ingó ætlar að leita réttar síns, hann segir ekkert hæft á ásökunum á hendur honum:
„Ég er kominn með nokkra lögfræðinga í málið.“