Ingó Veðurguð stendur ekki fyrir fjölskyldutónleikum á Facebook live í dag, eins og kemur fram í auglýsingu sem nú er í dreifingu á Facebook.
Orðalag auglýsingarinnar gefur til kynna að um falskan aðgang sé að ræða.
Sem stendur er aðgangurinn Music Entertainment Events in Iceland skráður fyrir viðburðinum, en fyrr í dag var BiT Concert skráð fyrir viðburðinum. Ekki er hægt að kaupa miða á tónleikana í gegnum auglýsinguna. Þar eru tónleikarnir kynntir sem eins og hálfs tíma langt prógramm, sem á að fara fram í dag. Viðburðurinn er sagður á vegum ARG viðburða, en ekki skráður sem slíkur. ARG er raunverulegur viðburðahaldari og hefur meðal annars unnið með KK, Mugison og Pétri Jóhanni leikara. Ekki náðist í fulltrúa ARG vegna málsins.
Í auglýsingunni segir að ARG viðburðir kynni Ingó með stolti og að tónleikarnir séu fjölskyldutónleikar. Þá er bætt við að fáir séu jafn vígir í að skemmta börnum og Ingó. Næst fylgir fullyrðing um að Ingó hafi verið einn af vinsælustu tónlistarmönnum landsins undanfarinn áratug og undanfarið ár hafi verið sérstaklega gjöfult hjá honum.
Ingó hefur, sem kunnugt er orðið, verið sakaður um fjölda kynferðisbrota og mörg þeirra snúast um brot gegn ólögráða einstaklingum. Bylgja ásakana reis upp í sumar í kjölfar þess að Ingó var meðal skráðra þáttakenda á skemmtun á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, sem Þjóðhátíðarnefnd ÍBV skipuleggur. Fljótlega hlupu ásakanirnar á tugum og birtust bæði undir nöfnum á samfélagsmiðlum, auk þess sem feminíski aðgerðahópurinn Öfgar birti 32 nafnlausar frásagnir.
Mikill hiti skapaðist vegna málsins og meðal annars stóð hópur manna fyrir tæplega þúsund undirskrifta lista þess efnis að ÍBV endurskoðaði ákvörðun sína.
Ingó lýsti yfir sakleysi með öllu, og brást við ásökununum með því að lögsækja fimm einstaklinga sem stigið höfðu fram undir nafni. Ingó réði lögmanninn Vilhjálm H. Vilhjálmsson til að reka fyrir sig málið. Þá lagði hann einnig fram kærur gegn þolendum á Tiktok-svæði feminíska aðgerðahópsins Öfga vegna þrjátíu og tveggja nafnlausra sagna af kynferðisbrotum.