Ingibjörg þorbergs er látin: „merkiskona er fallin frá“

Brautryðjandinn, lagahöfundurinn og söngkonan Ingibjörg Þorbergs er látin. Ingibjörg var frumkvöðull í laga- og textasmíð og var til að mynda fyrst allra íslenskra kvenna til að syngja eigið lag inn á hljómplötu. Hún söng og samdi fjölda laga sem komið hafa út á hljómplötu og stýrði einum vinsælasta útvarpsþætti landsins, Óskalögum sjúklinga. Greint er frá andláti þessarar merkiskonu á vef Ríkisútvarpsins

\"\"Ingibjörg Kristín Þorbergsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1927. Hún samdi sitt fyrsta lag níu ára, var í barnakór og söng fyrst einsöng í útvarpi 12 ára. Ingibjörg útskrifaðist sem klarinettleikari úr Tónlistarskólanum í Reykjavík 1952, fyrst allra klarínettleikara og var fyrst kvenna til að ljúka einleikaraprófi á blásturhljóðfæri. Þá segir á vef RÚV að Ingibjörg hafi verið aðeins 19 ára þegar hún hóf störf á Ríkisútvarpinu. Hún tók við óskalagaþættinum Óskalögum sjúklinga 1952 af Birni R. Einarssyni sem hafði verið með þáttinn á undan, og annaðist þá þáttagerð í fjögur ár við miklar vinsældir – reyndar svo mjög að þegar hún tók sér eitt sinn þriggja vikna sumarfrí ætlaði allt um koll að keyra. Hún annaðist einnig þáttagerð fyrir börn en hún átti stóran þátt í að móta útvarpsefni fyrir þann aldurshóp í Ríkisútvarpinu á þessum fyrstu áratugum útvarpsreksturs á Íslandi, auk þess fékkst hún við ýmis þula- og þáttastörf.

Hún hóf að koma fram opinberlega um 1950 með hljómsveitum eins og Smárakvartettnum og Marz bræðrum og tók um svipað leyti upp listamannsnafnið Ingibjörg Þorbergs. Á vefnum Glatkistan er fjallað ítarlega um lífshlaup Ingibjargar. Þar segir:

\"\"Um 1950 var Ingibjörg farin að syngja nokkuð opinberlega, bæði ein en einnig með Smárakvartettnum og Marz bræðrum sem einnig var sönghópur, enn fremur með hljómsveitum Carls Billich og Aage Lorange. Hún var með fyrstu dægurlagasöngvurum hérlendis en slíkur söngur á dansleikjum átti lítt við hana og féll hún því fljótlega frá þeirri tegund tónlistargeirans. Hún söng aftur á móti í kórum, t.d. í Útvarpskórnum, Tónlistarfélagskórnum og Þjóðleikhúskórnum sem hún söng reyndar með í um tuttugu og fimm ár.

Ingibjörg sló í gegn með plötum sínum og lögum, og fleiri fylgdu í kjölfarið. Tvær plötur litu dagsins ljós á fyrri hluta ársins 1954, Mamma mín / Pabbi minn og Oh my papa / Trying, Hljómsveit Carls Billich lék undir á þeim báðum en lögin áttu bara eftir að styrkja Ingibjörgu í sessi.

Ekki löngu síðar komu út tvær plötur sem Ingibjörg söng á ásamt Alfreð, þetta voru lögin Ég vildi að ung ég væri / Þín hvíta mynd og Harpan ómar / Þórður sjóari. Á fyrri plötunni samdi Ágúst Pétursson lögin en Sigfús Halldórsson á þeirri síðari.

Einnig kom út plata á vegum Músíkbúðarinnar Tóniku þar sem Ingibjörg og Ragnar Bjarnason sungu tvö lög, All of me og Nótt, það var KK-sextett sem lék undir söngnum á þeirri plötu.

Enn komu út plötur með söng Ingibjargar sem á þessum tímapunkti hafði skipað sér meðal fremstu dægurlagasöngvara samtímans. Á næstu tveggja laga plötu var að finna stórsmellinn Nú ertu þriggja ára sem enn í dag heyrist reglulega spilað í útvarpi en hitt lagið var Rósin mín. Hljómsveit Carls Billich lék undir söng Ingibjargar á þessari plötu en á næstu plötu lék hún sjálf ein á gítar við eigin söng. Það voru lögin Aravísur og Börnin við tjörnina en fyrra lagið var eftir Ingibjörgu sjálfa og kom henni endanlega á kortið sem lagahöfundur. Stefán Jónsson samdi ljóðið við lagið en Jenni Jóns lag og texta við síðara lagið.

En útgáfusögu Ingibjargar var enn ekki lokið 1954 því tveggja laga jólaplata kom út og varð að mörgu leyti tímamótaplata í íslenskri tónlistarsögu. Fyrra lag plötunnar heitir Hin fyrstu jól og var samið af Ingibjörgu við ljóð Jóhannesar úr Kötlum og er án nokkurs vafa fyrsta íslenska jólalagið sem kom út á plötu sem ekki var sálmur. Hitt lagið var erlent lag, Klukknahljóð, við ljóð Lofts Guðmundssonar.

\"\"Árið 1956 var hins vegar viðburðarríkt að öðru leyti hjá söngkonunni, hún hafði hætt með óskalagaþátt sjúklinga um vorið og fór í tveggja mánaða ferð um Bandaríkin um sumarið sem henni bauðst eftir að kór og hljómsveit frá The George Washington University kom hingað til lands í heimsókn, og hún hafði haft veg og vanda af undirbúningnum fyrir þá heimsókn. Í Bandaríkjunum kom Ingibjörg fram bæði í útvarpi og sjónvarpi í nokkur skipti og bauðst störf vestra í kjölfarið, m.a. plötusamningur hjá Capitol records. Ingibjörg hafnaði hins vegar tilboðunum, annars vegar vegna tímaskorts þar sem hún var að fara heim og fyrirvarinn til að taka svo stórar ákvarðanir stuttur, hins vegar vegna þess að show-bissnessinn heillaði hana ekki með sinni pressu og athygli.

Jón Ólafsson tónlistarmaður minnist Ingibjargar. Hann segir á Facebook:

„Ingibjörg Þorbergs er látin. Merkiskona er fallin frá en hún var mikill frumkvöðull á sviði laga- og textagerðar og fyrsta íslenska konan sem söng eigið lag inn á hljómplötu.

Ég náði að kynnast þessari góðu konu og meira að segja varð ég þess heiðurs aðnjótandi að spila undir hjá henni í sjónvarpinu fyrir margt löngu.

Hún var virkur meðlimur í Félagi tónskálda og textahöfunda á meðan hún hafði heilsu til og var dugleg að mæta á félagsfundi. Blessuð sé minning hennar.“

Þá segir Bubbi Morthens:

„Ingibjörg Þorbergs er látin hún ruddi götu sem aðrar tónlistar konur ganga í dag takk fyrir mig gamla vinkona.“

Hér má lesa umfjöllun Glatkistunnar.