Mjög skiptar skoðanir eru um kaup Sádi-Araba á enska fótboltaliðinu Newcastle. Liðið á nú ríkustu eigendur í heimi, svo ríka að þeir gætu í raun keypt öll liðin í ensku deildinni. Mörgum finnst nóg um peninga í íþróttinni án þess að bensíni sé hellt á bálið. Meðal þeirra sem leggja orð í belg er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi ráðherra, sem segir þetta ömurlegt. Hún deilir færslu frá Sveinbirni, syni hennar, sem segir:
„Hvaða munur er á því í dag að halda með fótboltaliði í einhverju af stóru deildunum eða halda með Google eða Facebook eða Exxon?,“ segir hann.
„Þetta eru ekki fótboltalið, þetta eru deildir í alþjóðlegum fyrirtækjum, rekin áfram með ekkert nema gróðasjónarmiðið í huga. Að kaupa fótboltalið gefur alls konar skuggalegum týpum færi á að sveipa um sig smá glamúr og þvo blóðpeningana sína.“
Nefnir hann svo söguleg illmenni:
„Og fyrst bin Salman má kaupa fótboltalið af hverju þá ekki Kim Jong-un? Ef Adolf Hitler hefði getað reitt fram peningana þá hefði enska knattspyrnusambandið bara sagt já og amen við því í dag. Enda engar reglur aðrar en "ég á það, ég má það" við lýði í nútíma kapítalisma.“
Hann segir að Newcastle United muni sjá eftir sölunni: „Eitt af því fyrsta sem verður gert er að bola burt venjulegu vinnandi fólki. Miðaverðið verður sett upp í hæstu hæðir þannig að það hafi ekki efni á því að fara á völlinn. Enda verður að búa til rými fyrir ríka og fína fólkið sem vill ekki þurfa að horfa upp á einhvern skítugan verkalýð.“
Sveinbjörn er hættur að fylgjast með fótbolta vegna þessa:
„Fyrir mig er þetta dropinn sem fyllti mælinn. Ég er hættur að fylgjast með fótbolta, öðrum en þeim þar sem takmarkaðar fjárhæðir eru í boði.“
Ingibjörg Sólrún tekur undir og segir:
„Ömurlegt að fylgjast með þessari alþýðu íþrótt verða að leikfangi auðmanna með mis hreinan skjöld.“