Ingibjörg sólrún dáist að árna

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrum formaður Samfylkingarinnar og ráðherra, hrósar ákvörðun Árna Páls Árnasonar að draga framboð sitt til formanns Samfylkingar til baka.

Ingibjörg Sólrún segist þó ekki viss um að þessi ákvörðun hafi verið rétt eða góð fyrir Samfylkinguna \"...en hún var örugglega óumflýjanleg og hún er fullkomlega skiljanleg. Árni Páll hefur sýnt meira úthald og seiglu en flestir hafa til að bera og á undanförnum vikum og mánuðum hefur hann sýnt og sannað úr hverju hann er gerður. Ég dáist að þolgæði hans og heilindum í því lævi blandna lofti sem umlykur íslenska pólitík,\" segir Ingibjörg Sólrún á facebook.

Hún bætir við að Árni Páll sé drengur góður. \"Það fékk ég sjálf að reyna í þeim hremmingum sem ég gekk í gegnum á árunum 2009 og 2010. Ég virði ákvörðun hans og óska honum velfarnaðar í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur.\"