\"Forystumaður Samfylkingarinnar i Landsdómsmálinu hefur stigið fram og telur sig vel til flokksforystu fallinn,\" segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar á nýrri færslu á fésbók sinni.
Sneiðin er augljóslega ætluð Magnúsi Orra Schram, fyrrverandi þingmanni flokksins í Suðvesturkjördæmi, en hann hefur tilkynnt þau áform sín að sækjast eftir formennsku í Samfylkingunni á landsfundinum í byrjun júní.
Í landsdómsmálinu svokallaða, þar sem þingmenn mátu hvort draga ætti fyrrverandi ráðamenn til ábyrgða vegna efnahagshrunsins, greiddi Magnús Orri atkvæði með því að Ingibjörg Sólrún sem og aðrir helstu ráðherrar í ríkisstjórn Geirs H. Haarde ættu að sæta ábyrgð fyrir afglöp og yfirsjón við stjórn landsins.
Töluverðar umræður fara fram á fésbók Ingibjargar Sóolrúnar vegna þessa inngrips hennar í formannsslaginn - og lætur til að mynda fráfarandi varaformaður flokksins, Katrín Júlíusdóttir þessi orð frá sér fara að gefnu tilefni. \"Hvernig gerum við svona mál upp með fullnægjandi hætti? Ekki förum við að splitta okkur upp eftir \"landsdómslínum\",\" skrifar hún, að því er virðist undrandi á tilskrifi gamla formannsins síns sem augljóslega er ennþá sár þeim sem greiddu atkvæði gegn henni í landsdómsmálinu, ekki síst þeim samflokksmönnum sínum sem svo fóru með atkvæði sitt.
Magnús Orri svaraði orðum Ingibjargar á Sprengisandi Sigurjóns M. Egilssonar í gærdag: \"Mér finnst þessi ummæli hins vegar sína mér tvennt. Ég er að koma hérna inn á þetta svið og mig langar að breyta þessum flokki. Mig langar að hrista upp svolítið upp í þessu. Sumir vilja ekki láta hrista upp í hlutunum. Ég er bara að segja hérna að við þurfum að breyta þessum stjórnmálaflokki.\"
Og honum var augljóslega nokkuð niðri fyrir: \"Mér finnst þetta líka sýna akkúrat það sem fælir fólk frá pólitík. Maður þurfti að taka um það ákvörðun, okei á ég að fara inn á þetta svið… Það er fullt af fólki úti í atvinnulífinu sem hefur fullt erindi í pólitík og langar að taka þátt í hvernig ákvarðanirnar eru teknar. En það treystir sér ekki inn á þetta svið akkúrat út af persónulegum árásum.\"