Inga vill loka algjörlega fyrir komu kínverskra ferðamanna til íslands

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, spyr hvers vegna sé ekki búið að loka algjörlega fyrir komu kínverskra ferðamanna til landsins á meðan að kórónavírusinn gengur yfir. Þetta kemur fram í Facebook færslu hjá þingkonunni. DV greindi fyrst frá.

Þar deilir hún frétt af vef ríkisútvarpsins þar sem kemur fram að fleiri en 28 þúsund manns séu nú talin smituð af kórónaveirunni svokölluðu. Flest smiti eru staðsett í Wuhan héraðinu svokallaða.

„Staðan er miklu mun alvarlegri ef marka má heimildir frá íbúum á svæðinu. Hvað er í gangi hér að við séum ekki búin að loka algjörlega fyrir komu kínverskra ferðamanna til landsins á meðan þessar hörmungar ganga yfir,“ skrifar Inga.

„Kínverski sendiherrann hér á landi aflýsti áður boðaðri nýársgleði hérlendis strax og vitað var um veiruna. En íslensk stjórnvöld sitja og bíða, sjá bara til.“

Þá er haft eftir Þórólfi Guðnasyni, sóttvarnalækni, í Morgunblaðinu í dag að til þess sé mælst að Íslendingar sem komi frá Kína fari í fjórtán daga sóttkví. Rætt hafi verið hvort beita ætti sömu aðferð við erlenda ferðamenn en það hafi reynst erfitt í framkvæmd. Allajafna séu ferðamenn frá Kína beðnir um að vera í sóttkví í 14 daga ef þeir veikjast.

„Við sjá­um að ár­ang­ur er að nást t.d. í Evr­ópu. Það er ekki mikið um út­breiðslu frá þess­um til­fell­um sem hafa greinst,“ sagði Þórólf­ur í Morgunblaðinu í dag.